|
Janúar 2012
Hernámsárin og hannyrðir

Síðastliðin vika var lífleg í Snorrastofu. Reyndar hófst hún með því að fresta varð námskeiðskvöldi í Eyrbyggju vegna veðurs, en stemmingin reis á þriðjudeginum þegar Heiðar Lind Hansson hélt fyrirlestur sinn um Hernámsárin í Borgarfirði 1940-1943, áhrif þeirra og birtingamynd. Þetta var jómfrúarfyrirlestur Heiðars, sem hefur nýlokið M.A. prófi í sagnfræði frá London School of Economics and Political Science. Fyrirlesturinn byggði hann á B.A. ritgerð sinni um sama efni og greinilegur áhugi áheyrenda birtist í afar góðri mætingu og hressilegum og fjölbreyttum umræðum að fyrirlestri loknum. Nánar um fyrirlesturinn og Prjóna-bóka-kaffi vikunnar. Myndir
Desember 2011
Aðventu- og jólastemming í Reykholti
Auk bókmenntanna hljómuðu tónar í Reykholti, sem gáfu aðventu og jólum í Reykholti hátíðlegan blæ.
 |
Borgfirsk ungmenni á jólatónleikum |
Rúsínan í pylsuendanum telst vafalaust vera framtak borgfirsku ungmennanna, sem buðu til tónleika á milli jóla og nýárs. Þar kom fram myndarlegur hópur, sem auðgaði jólahátíðina með fjölbreyttri og metnaðarfullri tónleikadagskrá.
Umfjöllun í Skessuhorni:
Nánar um viðburði aðventunnar:
Aðventutónleikar Kóraborgar.
Óskar Guðmundsson á heimaslóð: Brautryðjandinn og Borgfirðingar.
Tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur.
Nóvember 2011
Norræna bókasafnsvikan lífleg í Snorrastofu
Þórarinn Eldjárn:
Völumál og Hávaspá,
fyrirlestur í Snorrastofu
Heimsókn í Grunnskóla Borgarfjarðar
|
 |
Þórarinn Eldjárn á tali við nemendur |
|
Kristín Á. Ólafsdóttir:
Upplestur í Prjóna-bóka-kaffi úr bók Mikael Niemi, Rokkað í Vittula
|
 |
Kristín Á. Ólafsdóttir les | |
Fleiri viðburðir haustsins, svipmyndir...
Október 2011
Perlur í Reykholsdal, myndir Guðlaugs Óskarssonar

Nú hefur verið sett upp myndasýning í anddyri Gestastofu, Perlur í Reykholtsdal. Höfundur myndanna er Guðlaugur Óskarsson, en hann hefur að undanförnu lagt sig eftir að mynda Reykholt og fallega staði í dalnum.
Nánar
Hollvinafélag Reykholts stofnað
Snorrastofa hefur stofnað Hollvinafélag, sem opið er öllum, sem styðja vilja áframhaldandi uppbyggingu í Reykholti. Félagar fá frían aðgang að sýningum Snorrastofu fyrir tvo, eins oft og þeir kjósa og njóta auk þess 15% afsláttar í versluninni í Gestastofu. Félagsgjald er kr. 5.000 Sjá bækling um Hollvinafélagið
Viðburðaskrá Snorrastofu 2011-2012 er komin út
Snorrastofa hefur gefið út skrá um viðburði frá haustdögum fram á næsta vor. Kennir þar margra grasa og óhætt er að segja að fjölmargir leggi stofnuninni lið við að rækja sögu og menningu í víðasta skilningi þess orðs, auk þess að taka til umfjöllunar samfélagsmálefni líðandi stundar. Viðburðaskránni er dreift á hvert heimili í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit og er ennfremur gerð veftæk hér á heimasíðunni. Smellið hér til að sjá Viðburðaskrána
September 2011
Áhugaverður fyrirlestur Viðars Pálssonar

Þann 27. september s.l. flutti Viðar Pálsson minningarfyrirlestur í tilefni af ártíð Snorra Sturlusonar. Hann nefndi fyrirlesturinn, Einstaklingurinn og listaverkið. Hugmyndafræðilegar rætur íslenska skólans. Hann fjallaði m.a. um þá alþjóðlegu strauma, sem léku um Sigurð Nordal og Einar Ól. Sveinsson, er þeir mótuðu hinn svokallaða íslenska skóla í rannsóknum á forníslenskri menningu og bókmenntum og nefndi sérstaklega til sögunnar Jacob Burckhardt. Að loknum fyrirlestrinum spunnust líflegar umræður fyrirlesara og gesta. Nánar... Myndir
Emily Lethbridge á ferð í Reykholti

Fyrir skömmu dvaldi hér í Snorrastofu dr. Emily Lethbridge, sem ferðast nú um landið til að skoða umhverfi u.þ.b. 35 Íslendingasagna og með hvaða hætti þær lifa áfram í hugum fólksins, sem þar býr. Hún hefur í leiðangri sínum m.a. unnið athyglisvert myndband um Dýrafjörð og Gísla sögu Súrssonar út frá þessu sjónarhorni og birt á vef Háskólans í Cambridge.
Hér í Reykholti snerist rannsókn hennar um Hænsa-Þóris sögu. Emily er þekkt fyrir gamla sjúkrabílinn, sem hún keypti á sínum tíma á Englandi og notar hér til ferðalaga og bústaðar. Hún starfar við Háskólann í Cambridge á Englandi. Frekari upplýsingar um Emily má nálgast á síðu hennar http://sagasteads.blogspot.com/
Námskeið um Snorra hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Snorri Sturluson hefur sett meira mark á Íslandssöguna og menningarsögu í Vestur-Evrópu en flestir aðrir einstaklingar. Í ævisögu hans, Snorri - ævisaga Snorra Sturlusonar 1179-1241 eftir Óskar Guðmundsson, er sögð saga mikilhæfs manns sem þurfti að kljást við konunga í útlöndum, höfðingja heima fyrir, börnin sín og breyskleika. En þessi maður sem barðist við heiminn fyrir átta öldum sigraði hann líka með bókmenntunum.
Umsóknarfrestur er til 11. nóvember.
Ævisaga Snorra Sturlusonar eftir Óskar Guðmundsson,
er komin út á þýsku
 |
Ævisaga Snorra Sturlusonar eftir Óskar Guðmundsson, er komin út á þýsku í þýðingu dr. Reginu Jucknies sem kennir við Háskólann í Köln, en formála ritar Rudolf Simek prófessor í germönskum fræðum við háskólann í Bonn. |
Heitið á þýsku, Snorri Sturluson – Homer des Nordens, undirstrikar þá lykilstöðu, sem Snorri hefur í heimsbókmenntunum. Óskar Guðmundsson verður gestur Bókasýningarinnar í Frankfurt, 12. – 16. október n.k. þar sem íslenskar bækur verða í öndvegi. Þar verður þessi nýja ævisaga Snorra kynnt sérstaklega, en Böhlau-forlagið þýska gefur bókina út. Ævisaga Snorra var gefin út á íslensku hjá Forlaginu í Reykjavík árið 2009.
Fornsagnanámskeið vetrarins verður Eyrbyggja
Snorrastofa, Símenntunarmiðstöð Vesturlands og Landnámssetrið í Borgarnesi standa á komandi vetri fyrir námskeiði í fornsögum eins og venja hefur verið. Fyrir valinu að þessu sinni varð Eyrbyggja. Námskeiðið hefst í Landnámssetrinu, mánudagskvöldið 3. okt. kl. 20 Kennarar eru allt virtir sérfræðingar, hver á sínu sviði. Námskeiðið verður samtals 6 mánudagskvöld, til skiptis í Snorrastofu og Landnámssetrinu. Skráning á námskeiðið fer fram hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands, Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi, s.: 437 2390, á vef:http://simenntun.is netfang: simenntun@simenntun.is
 Norski tréskurðaðameistarinn vakti athygli
Norski tréskurðarmeistarinn Bjarte Aarseth dvaldi hér í byrjun júlí við útskurð á vígásum nýrrar sýningar um Snorra Sturluson, sem nú er í burðarliðnum. Til að ljúka útskurðinum kom hann aftur síðla sumars, 25. ágúst og var hér í nokkra daga til viðbótar. Hann vann verk sitt í sýningarrými í safnaðarsalnum og bauð gestum að fylgjast með og fræðast um verkið. Bjarte vakti mikla athygli og margir nýttu sér tækifærið til að fylgjast með meistara í útskurði. Meira... Myndir
 Í byrjun júlí 2011... Snorralaug í viðgerð
Unnið er að því að lagfæra frárennsli Snorralaugar, sem er í umsjá Fonleifaverndar ríkisins. Það er Guðni Guðnason pípulagningameistari, sem sér um viðgerðina ásamt staðarins mönnum, Tryggva Konráðssyni og Kristjáni Welbes. Myndir
25. júní 2011...
Sveitamarkaður Framfarafélagsins
 |
Þorvaldur Jónsson
léttir mönnum lundina |
Það var líf og fjör á sveitamarkaði Framfarafélags Borgfirðinga, sem haldinn var á túninu við Reykholt síðast liðinn laugardag. Veðrið var eins og best verður á kosið og regluleg sumarstemning myndaðist. Gestir gátu keypt sér kaffisopa og meðlæti, Þorvaldur í Brekkukoti létti mönnum lífið með harmonikkuleik og söng, krakkarnir grilluðu víkingabrauð og fóru í ratleik að ógleymdum markaðnum sjálfum þar sem sveitungar kynntu og seldu margvíslegar afurðir og uppátæki. Segja má að hinn sögufræði staður Reykholt hafi fengið hressilega andlitslyftingu á meðan á markaðnum stóð og kunnað henni vel.
16. og 17. júní 2011...
Höskuldarvaka og þjóðhátíð
 |
Fánaberar í kirkjureiðinni,
Eyjólfur Gíslason og Sigríður Harðardóttir |
Snorrastofa og Ungmennafélag Reykdæla stóðu saman að hátíðardagskrá þ. 16. og 17. júní s.l.
Minnst var hestamannsins Höskuldar Eyjólfssonar frá Hofsstöðum, sem lést vorið 1994 þá á rúmlega 101 árs. Hann var um margt eftirminnilegur og hafði afgerandi áhrif á þróun hestamennskunnar.
Efnt var til kvölddagskrár í Logalandi og á þjóðhátíðardaginn var riðin hópreið til messu í Reykholti,
 |
Páll Guðmundsson við verk sitt í Húsafelli | eins og jafnan fyrr á þjóðhátíð, afhjúpaður minnis-varði um Höskuld að henni lokinni og Höskuldargerði vígt, en það er hrossarétt, sem hlaðin hefur verið í túnfæti Reykholts. Að svo búnu var haldiði til hefðbundinnar þjóðhátíðardag-skrár í Logalandi.
Margt manna sótti þessa viðburði, sem tókust í alla staði vel.
 |
Hátíðin í Logalandi var fjölsótt |
Vorið kom í Reykholt
- og skólahóparnir

Vorinu fylgja jafnan skemmtilegar heimsóknir eins og skólahópar, sem numið hafa um Snorra Sturluson og eru komnir til að fræðast enn frekar um hann. Krakkarnir eru vel að sér og hlusta gjarnan á sr. Geir Waage segja frá ýmsu sem tengist Snorra og fara síðan um heimkynni rithöfundarins og höfðingjans hér í Reykholti.
Síðasti hópurinn, sem að þessu sinni var úr Hofsstaðaskóla, kom hér 6. júní. Hann var sérlega áhugasamur og sýndi fyrirmyndarframkomu. Myndirnar voru teknar í kirkjunni með sr. Geir.


(Ljósm. Guðlaugur Óskarsson)
Mars 2011
Vel heppnað málþing um vatnasvæði Hvítár

Laugardaginn 19. mars s.l. stóðu Snorrastofa og Veiðmálastofnun fyrir málþinginu, Vatnasvæði Hvítár.
Búsvæði, veiðinýting - sjálfbærni til framtíðar.
Veðráttan blés ekki byrlega til samkomuhalds en aðstandendur málþingsins og áhugamenn um veiðimálefni létu það ekkert á sig fá og mættu til leiks á tilsettum tíma. Óvenjumikið var um að vera í menningar- og samkomumálum héraðsins þessa helgi, en aðsókn að málþinginu var samt sem áður góð og eftir fróðleg erindi urðu líflegar umræður. Nánar
Viðbótarstólar

Föstudaginn 11. mars var nokkur handagangur í öskjunni hjá Þorvaldi Jónssyni formanni sóknarnefndar og Tryggva Konráðssyni staðarráðsmanni þegar þeir tóku upp nýja fellistóla, sem nýtast munu við stærri athafnir.
Febrúar 2011
Kristnihald undir Jökli
vekur áhuga

Haukur Júlíusson á Hvanneyri flutti fyrirlestur 22. febrúar s.l., sem hann nefndi „Ég jarðsyng akkúrat ekki nokkurn einasta anskotans mann" Svipast um undir Jökli. Þar vísar Haukur í orð Jóns Prímusar í Kristnihaldinu, sem hann gerði að umfjöllunarefni kvöldsins.
Haukur kallaði til frásagnar og spjalls Kjartan Ragnarsson leikara, sem tók á sínum tíma þátt í uppfærslu á leikgerð verksins með Sveini Einarssyni í Iðnó. Segja má að þeir félagar hafi leikið á als oddi og beinlínis fært áheyrendur inn í söguna og tilurð hennar.
Kvöldið reyndist höfða til margra og var hvert sæti skipað á fyrirlestrinum.
Nýr skrúði kirkjunnar vígður

Daginn eftir Þorrablót Reykdæla, sunnudaginn 7. febrúar var Kyndilmessan
haldin hátíðleg í Reykholtskirkju
að venju.
Í messugjörðinni var vígður nýr skrúði sem Margrét Gunnlaugsdóttir hefur saumað,
en hún gerði altarisklæðið fyrir altari Pétursstúkunnar í kirkjunni.
Það klæði er af bláu vaðmáli, eftirgerð klæðis frá 1719, farurlega útsaumað.
Nýi skrúðinn er einnig af bláu vaðmáli, blómum prýddur.
Grettla á góðri siglingu

Grettis saga er til umfjöllunar á fornsagnanámskeiði Snorrastofu, Landnámsseturs og Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands. Óvenjumargir eru skráðir á námskeiðið, sem er til skiptis í Landnámssetri og Snorrastofu. Mánudaginn 7. febrúar mætti hópurinn í Snorrastofu til að hlusta á Viðar Hreinsson fjalla um Grettlu sem fyrstu nútímaskáldsöguna.
Janúar 2011
Nýjung í bókhlöðunni
Prjóna - bóka - kaffi:

Bókhlaðan hefur boðið til handavinnu og bókakvölda, sem mælst hafa vel fyrir. Gestir hafa komið með handavinnuna sína og deilt hugmyndum um hana og bóklestur, auk annarra áhugamála. Áætlað er að þessi kvöld verði á fimmtudögum á hálfsmánaðar fresti fram til vors.
Mikill áhugi á klaustrinu í Bæ

Bókhlaða Snorrastofu fylltist þriðjudaginn 1. febrúar af áhugasömum tilheyrendum á fyrirlestur sr. Flóka Kristins-sonar, Klaustrið í Bæ á árunum 1030-1049. Hugleiðingar um Hróðólf ábóta og hlutverk klaustursins.
Ljóst er að í Bæ liggja órannsakaðar minjar um merkilegan tíma í sögu þjóðarinnar.
Góðir gestir í heimsókn
Sendiherra Noregs:

Þriðjudaginn 1. febrúar kom sendiherra Noregs, Dag Wernø Holter í heimsókn í Reykholt. Með honum í för var nýr sendiráðsritari, May Helene Worvik og Per R. Landrø, menningar- og upplýsingafulltrúi.
Nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar:

Ánægjulegt var að taka á móti nemendum úr 6. bekk í Kleppjárnsreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar þegar þau komu í heimsókn á dögunum með sögukennara sínum Þóru Magnúsdóttur. Sr. Geir tók á móti hópnum, sem þáði fræðslu um Snorra Sturluson og fleira, sem tengist Reykholti. Þá var einnig komið við í Bókhlöðunni.
Góð mæting í Prjóna-bóka-kaffi
Margir mættu með handavinnuna sína og deildu hugmyndum um handavinnu og bækur á prjóna-bóka-kaffi, sem haldið var fimmtudagskvöldið 20. janúar s.l. Ákveðið var að hittast aftur að hálfum mánuði liðnum, fimmtudagskvöldið 3. febrúar. Bókhlaðan er opin þetta kvöld til útlána.
Desember 2010
Ljóðlistin blómstraði
á bókakynningu
|

|
Skemmtileg stemning var á bókakynningu þann 14. desember |
þegar saman komu skáld af margvíslegum toga. Kynnt var heildarútgáfa á verkum Hallgríms Péturssonar og núlifandi skáld lásu úr verkum sínum.
Styrkur úr Þjóðhátíðarsjóði
Þann 1. desember s.l. fékk Snorrastofa afhentan styrk úr Þjóðhátíðarsjóði til sýningar þeirrar, sem nú er í burðarliðnum, um Snorra Sturluson.
Fyrirlestur í héraði
á Degi íslenskrar tungu,
16. nóvember
 |
Ingimar Sveinsson kennari og hestamaður hélt fyrirlestur um íslenska hestinn, sérstöðu hans og sérkenni, og kynnti bók sína |
Hrossafræði Ingimars, sem kemur út hjá Uppheimum um þessar mundir. Góð aðsókn var að fyrirlestrinum. Í hópi gesta voru að sjálfsögðu margir hestamenn.
Húsfyllir á Akranesi
Svöfusalur í Bókasafni Akraness fylltist af áhugasömum áheyrendum á dagskrá Snorrastofu og bókasafnsins á Vökudögum. Dagskráin nefndist Kvöldstund með Kristrúnu á Bjargi. Þorsteinn frá Hamri las úr bók sinni, Bragi Þórðarson sömuleiðis og Snorri Þorsteinsson fjallaði lítillega um bók Þorsteins, Hallgrímur smali og húsfreyjan á Bjargi. 
Október 2010
Vinnufundur í Reykholtsverkefninu
Þann 22. og 23. október s.l. var haldinn umræðufundur í Reykholtsverkefninu, sem Snorrastofa stendur að ásamt fleiri stofnunum. Efni fundarins var útgáfa á lokariti verkefnisins, sem nú er í burðarliðnum. Meginmarkmið verkefnisins er að varpa ljósi á valdasamþjöppun á þjóðveldistíma, tilurð pólitískra og kirkjulegra miðstöðva og tengsl þessa við landsnytjar, byggðarþróun og bókmenntasköpun. Reykholt í tíð Snorra Sturlusonar er kjarninn í rannsókninni og kannaðar verða norrænar og vesturevrópskar hliðstæður. Áformað er að gera þetta með því að sameina rannsóknir á sviði hugvísinda, félagsvísinda og raun-vísinda.
|

|
Október 2010
Athyglisverð bók um Reykholt til forna, eftir Benedikt Eyþórsson, sagnfræðing |
Búskapur og rekstur staðar í Reykholti 1200-1900 kom úr árið 2008 og er þriðja bókin í ritröðinni Meistaraprófs-ritgerðir sem Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands gefur út.
Benedikt Eyþórsson lauk M.A.-prófi frá Háskóla Íslands í febrúar 2007. Hann hefur tekið virkan þátt í hinu þver-faglega og alþjóðlega Reykholts-verkefni frá hausti 2001 og haldið erindi og skrifað greinar um staðinn og sögu hans.
|
Október 2010
Metaðsókn að námskeiði
um Grettlu
Metaðsókn er að námskeiði um Grettis sögu Ásmundarsonar, sem Snorrastofa, Landnámssetur Íslands og Símenntunar-miðstöðin á Vesturlandi halda. Samtals hafa 24 skráð sig á námskeiðið, en námskeiðahald þessara stofnana hefur nú varað í 6 ár. Starfsemi þessi hófst árið 2005 með námskeiði um Egils sögu og síðan hefur hvert námskeiðið tekið við af öðru. Þar má nefna Brennu-Njáls sögu, Fornaldarsögur Norðurlanda, námskeið í Norrænni goðafræði, Íslendingasögur á Vesturl andi, konur á miðöldum, landnám Íslands og Snorra og Sturlungaöldina.
Menningar- og söguferðaþjónusta 14. - 17. október
Námskeiðið, Menningar-
og söguferðaþjónusta,
sem er samstarfs-verkefni Háskóla Íslands og Snorrastofu, verður haldið nú um helgina í Hátíðarsal Snorrastofu.
Námskeiðið er hluti meistaranáms í Hagnýtri menningarmiðlun við Sagnfræði- og heimspekid eild H.Í. Aðalkennarar verða Eggert Þór Bernharðsson og Guðbrandur Benediktsson, en nokkrir aðrir munu einnig koma að kennslunni.
Myndir frá námskeiðsdögum
Vetrardagskrá Snorrastofu ýtt úr vör
Snorrastofa hefur gefið út viðburðaskrá yfir alla viðburði á vegum hennar á komandi vetri. Viðburðaskrána má nálgast hér.
Fornsagnanámskeið
Námskeið í Grettis sögu er hafið. Það er á vegum Snorrastofu, Landnámsseturs og Símenntunarmiðstöðvarinna á Vesturlandi.
Fyrsti fyrirlestur í héraði
Fyrsti viðburður vetrarins var fyrirlestur Óskars Guðmundssonar þann 23. september s.l. á ártíð Snorra Sturlusonar, "Það var fyrir átta öldum. Dvöl Guðmundar góða í Reykholti, ástúð og pólitík þeirra Snorra Sturlusonar". Góð aðsókn var að fyrirlestrinum og gott andrúmsloft ríkti yfir kvöldinu.
Norsk-íslensk vinabönd í Reykholti
Þann 29. júlí 2010 voru 10 ár liðin frá því að húsnæði Snorrastofu var tekið í notkun. Af því tilefni stóð Snorrastofa, í samvinnu við Sendiráð Noregs á Íslandi að dagskrá sem bar heitið "Norsk-islandske vennskapsdager". Norskir og íslenskir fyrirlesarar og höfundar komu fram og var lögð áhersla á Snorra í Noregi og Bjørnson á Íslandi en hann var vinsæll hér á landi á sínum tíma. Í ár eru liðin 100 ár frá því að Bjørnson lést, og stendur yfir svokallað „Bjørnson-år“ í Noregi af því tilefni.
Samstarf um Stofnun Sigurðar Líndals
í réttarsögu
Háskólinn á Bifröst og Snorrastofa efna til
móttöku í tilefni af samstarfi um Stofnun Sigurðar Líndals í réttarsögu, miðvikudaginn 26. maí 2010 í Snorrastofu.
Styrkur frá Menningarráði Vesturlands
Hæsti styrkur Menningaráðs Vesturlands í ár fór til Snorrastofu. Styrkurinn er ætlaður til að hanna og setja upp nýja sýningu um Snorra Sturluson ævi, skáldskap og hýbýli.
Tvær nýjar bækur frá Snorrastofu |
|

eftir dr. Lena
Liepe, prófessor
í listasögu við
Háskólann í
Osló.
| |
|
 |
Ritstjóri er
dr. Jon Gunnar
Jørgensen,
prófessor í
norrænum
fræðum við
Háskólann í
Osló.
|
|

Þann 4. nóvember sl. tilnefndi Umhverfis- og landbúnaðarnefndar Borgarbyggðar Reykholt og umhverfi þess til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu. Þessi tilnefning er mikið fagnaðarefni, enda er búið að leggja gríðarlega vinnu í umhverfismálin hér á staðnum.
 |
Snorri - ævisaga Snorra Sturlusonar 1179-1241
eftir Óskar Guðmundsson er komin út. JPV útgáfa gefur út fyrstu heildstæðu ævisöguna um sagnaritarann.
|

Frá kálfskinni til tölvu
Norræn ráðstefna um tungumál lítilla málsvæða, málstefnur, norræn tjáskipti, þýðingar og táknmál, haldin 2.-3. október 2009.

Viking Congress
Alþjóðleg ráðstefna sérfræðinga í rannsóknum á sviði víkingatímans.
Haldin 17.-23. ágúst.
|

Hirða í
görðum
Reykholts |
Vinnuskólakrakkar og fleiri starfsmenn hafa nóg að gera við hirðu á staðnum. Garður umhverfis Reykholt er orðinn stór með nokkrum útivistarreitum og metnaðurinn mikill við að halda þeim snyrtilegum. Nýja gatan í Reykholti, Hallveigartröð var malbikuð í sumar og stöðugt er verið að bæta stíga í skóginum ofan við staðinn, enda kemur fólk í Reykholt að stórum hluta til að njóta útiveru.
Fagurt nýtt altari
Í Reykholtskirkju hefur verið komið fyrir nýju altari í Pétursstúku kirkjunnar. Stefán Ólafsson smíðaði altarið. Hin gamla altarisbrík Reykholtskirkju frá því á 16. öld prýðir stúkuna. Þá hefur listiðnaðarkonan Margrét Gunnlaugsdóttir ofið forkunnarfagurt antependium, eftirgerð altarisklæðis frá 1719 sem lengi var í kirkjunni.
Styrkur frá Danmörku
Rannsóknarverkefnið ,,Pre-Christian Religions of the North" hefur fengið 50.000 danskar krónur (um 1 miljón íslenskra króna) í styrk frá danska sjóðnum ,,A.P. Møller og Hustru Chastine Møllers Fond til almene Formaal". Styrkurinn mun aðallega fara í ritstjórnarfundi á árinu 2009, enda koma ritstjórarnir frá Ástralíu og Bandaríkjunum ásamt ýmsum Evrópulöndum.
|
|
September 2010
|
Eins og undanfarna vetur verður boðið upp á fornsagnanámskeið í samvinnu Landnámsseturs í Borgarnesi, Símenntunarmiðstöðvarinnar og Snorrastofu. Að þessu sinni varð Grettis saga fyrir valinu og verður námskeiðið haldið til skiptis á sögulofti Landnámsseturs og í Snorrastofu, sex mánudagskvöld í vetur, kl. 20-22. Fyrsta sögukvöldið verður mánudagskvöldið 4. október í Landnámssetrinu Borgarnesi.
Kennslan verður í höndum þekktra fræðimanna, sem kryfja og varpa ljósi á söguna, hver frá sínu sjónarhorni:
Bergljót Kristjánsdóttir, Einar Kárason, Guðrún Ingólfsdóttir, Jón Torfason, Viðar Hreinsson og Örnólfur Thorsson.
Fjallað verður m.a. um Grettlu sem bók-menntaverk, - fyrstu nútímaskáldsöguna, örnefni, tilurð, byggingu og stílbrögð sögunnar, hvernig Grettla verður að kvikmyndahandriti og kveðskap í Grettis sögu. Skráning fer fram hjá Símenntunar-miðstöðinni http://simenntun.is
|
|
30. janúar, mánudagur kl. 20-22
Landnámssetur í Borgarnesi
Eyrbyggja
- Fornsagnanámskeið
Þriðja námskeiðskvöld vetrarins.
Leiðbeinandi Torfi Tulinius,
Torfi fjallar um kveðskapinn í Eyrbyggja sögu. Nemendur skoði sérstaklega kafla 18 til 22 og vísurnar sautján sem þar eru og eru flestar hafðar eftir Þórarni Máhlíðingi. Einnig er ágætt að lesa inngang Einars Ólafs Sveinssonar að sögunni, einkum kafla 1 og 6.
6. febrúar, mánudagur kl. 20-22
Bókhlaða Snorrastofu
Eyrbyggja
- Fornsagnanámskeið
Fjórða námskeiðskvöld vetrarins.
Leiðbeinandi Ármann Jakobsson.
9. febrúar, fimmtudagur kl. 20-22
Bókhlaða Snorrastofu
Prjóna-bóka-kaffi
Bókhlaðan býður gestum að koma með handavinnuna sína og eiga saman samveru með kaffisopa og spjalli um hannyrðir, áhugamálin og bókmenntir. Allir eru velkomnir, safnið er opið til útlána fyrir alla þetta kvöld.
18. febrúar, laugardagur kl. 14-17
Hátíðarsalur Héraðsskólans í Reykholti
Fjölmiðlar á landsbyggðinni og hlutverk þeirra
Opið málþing á vegum Snorrastofu og Skessuhorns.
Erindi og þátttaka í pallborðsumræðu:
Birgir Guðmundsson, kennari við Háskólann á Akureyri
Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri og stjórnarformaður Byggðastofnunar
Áslaug Karen Jóhannsdóttir, blaðamaður
Jón Jónsson, Kirkjubóli á Ströndum
Ragnar Karlsson forstöðumaður fjölmiðladeildar á Hagstofunni og stundakennari við HA
Gísli Einarsson fréttamaður á RÚV
Dagskrárstjóri:
Magnús Magnússon ritstjóri Skessuhorns
 |
Systur í vetrarbúningi |
 |
Snorralaug að vetri |
 |
Vetur í Reykholti / ljósm. Guðl.Ósk. | |
|
Heilög Cecilia
Í forkirkju var samsýning Páls á Húsafelli og Thors Vilhjálmssonar, sem bar heitið Heilög Cecilía.
Fornar gáttir
Sýning um fornleifauppgröft, sem stóð fram til 1. sept. 2011. Hluti sýningarinnar stendur þó enn að hluta í safnaðarsal kirkjunnar.

Minningarkort Reykholtskirkju eru til sölu hjá Snorrastofu og einnig kort með myndum af orgeli og kirkjugluggum.
Allur ágóði rennur í listskreytingasjóð kirkjunnar.
Bókhlaða Snorrastofu er opin
almenningi virka daga kl. 9-17.
Framtíðarskipulag Reykholts
Teikningar á pdf formi. Stefnt er að þvi að byggja við sýningarrýni núverandi húsnæðis Snorrastofu og tengja það í framtíðinni yfirbyggingu á svæði fornleifarannsókna í Reykholti, sem talið er hafa verið aðsetur Snorra Sturlusonar.
|
|
|

Sími 433 8000
Póstnr. 320 Reykholt
hjá snorrastofa.is
Menningar- og
miðaldasetur,
stofnað í minningu
Snorra Sturlusonar.
Snorrastofa
sinnir rannsóknum, starfrækir bókhlöðu,
annast tónleikahald
í kirkjunni og
veitir ferðamönnum
þjónustu.
Opnunartímar:
1. maí - 31. ágúst:
Alla daga kl. 10-18
1. sept. - 30 apríl:
Virka daga kl. 10-17
Á öðrum tímum
eftir samkomulagi.
Gestamóttaka
tónleikar og bókun á gestaíbúð og aðstöðu:
hjá snorrastofa.is
Bókhlaðan
er opin almenningi alla virka daga kl. 9 - 17
|
|
| |
|
|

|
|
 |
|

|

|
|

VÍKINGASPIL |
|

|
|

|
|

|
|
|